top of page
gló-Ey
Hafa samband:
Eygló Gunnarsdóttir starfar sem textílkennari við Grundaskóla á Akranesi. Hún hefur sótt fjölda námskeiða í list- og handverki og fæst við fjöldbreyttar aðferðir innan textílmenntar.
Undir merkinu gló-Ey vinnur Eygló mest með leður, fiskroð, kanínuskinn, vélsaum og þæfingu og endurnýtir gjarnan textílefni sem og annan efnivið. Eygló notar helst íslenskt hráefni (fiskroð, ull) og náttúrulegt (silki, hör). Hún hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum og hefur um árabil hannað og haft umsjón með saumaskap á búningum í söngleikjaverkefnum Grundaskóla.
Eygló tekur á móti hópum á námskeið í þæfingu og að vinna með fiskroð, auk þess sem vörur hennar eru til sýnis og sölu á vinnustofu hennar að Skagabraut 17.
bottom of page