top of page

gló-Ey

gloey.jpg

Hafa samband:

  • Facebook
  • Email

Eygló Gunnarsdóttir starfar sem textílkennari við Grundaskóla á Akranesi. Hún hefur sótt fjölda námskeiða í list- og handverki og fæst við fjöldbreyttar aðferðir innan textílmenntar.

Undir merkinu gló-Ey vinnur Eygló mest með leður, fiskroð, kanínuskinn, vélsaum og þæfingu og endurnýtir gjarnan textílefni sem og annan efnivið. Eygló notar helst íslenskt hráefni (fiskroð, ull) og náttúrulegt (silki, hör).  Hún hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum og hefur um árabil hannað og haft umsjón með saumaskap á búningum í söngleikjaverkefnum Grundaskóla.

 

Eygló tekur á móti hópum á námskeið í þæfingu og að vinna með fiskroð, auk þess sem vörur hennar eru til sýnis og sölu á vinnustofu hennar að Skagabraut 17.

gloey1.jpg
gloey5.jpg
gloey6.jpg
gloey3.jpg
gloey7.jpg
gloey4.jpg
gloey2.jpg
bottom of page